laugardagur, apríl 26, 2003

Dr. Evil


Ég var virkilega evil í kvöld. Mér er skapi næst að bera litlafingur hægri handar upp að neðri vör og hlægja hátt og lengi. Æi kannski var ég ekkert svo evil en ég reyndi það nú samt. Þannig er mál með vöxtum (ég veit að það á að segja mál með vexti en þetta er skemmtilegra svona) að það er stelpa á Akureyri sem var alltaf að senda mér sms hér um árið. Manneskjuna þekki ég ekki neitt og hef aldrei hitt, og ég man ekki einu sinni af hverju hún fór að senda mér sms. En ég hætti að svara þegar hún sagðist vera 27 ára (var áður búin að segjast vera 21s árs). Eitthvað fráhrindandi við 27 ára stelpu sem sendir tæplega tvítugum (á þeim tíma) strák sem hún þekkir ekkert sms. Svo í kvöld fæ ég sms þar sem hún spyr hvort ég ætli ekki að fara að kíkja norður. Ég varð nottla að nýta tækifærið og segist vera fyrir norðan og að ég sé á kaffi amor sem er kaffihús í miðbæ Akureyrar, og hvort hún ætli ekki að kíkja á mig. Hún jánkar því og hlakkaði mikið í mér að geta spilað svona með greyið stelpuna. Ég segi að ég sé þar með nokkrum vinum og að hún eigi að koma með vinkonur sínar líka barasta. Stuttu síðar segist hún vera á leiðinni en ég sagðist hafa skotist burt til að skutla vini mínum heim en muni koma aftur. Passlega mikið seinna sendi ég henni sms og spurði hvar þær væru en ekkert fékk ég svarið. Ég er farinn að halda að hún hafi líka bara verið einhverstaðar hlægjandi að mér en það er þá nottla bara besta mál. Hefði nú verið betra ef hún hafi mætt og leitað að mér en það verður víst ekki á allt kosið.

Ég var að horfa á sjónvarpið áðan og renndi framhjá popptíví þar sem ég staldraði við þrátt fyrir að Robbie nokkur Williams væri þar að þenja raddböndin. Myndbandið var nokkuð flott og varð ennþá flottara þegar það breyttist í algjöra orgíu þar sem fólk var ríðandi og takandi allskyns eiturlyf á fullu. Allt var morandi í skordýrum og snákum og rottum til að leggja áherslu á hvað þessi lifnaðarháttur sé ógeðslegur (að ég held) og var þetta allt saman mjög flott og vel gert. Mig fór svo að ráma í einhverja umræðu um að það væri búið að banna eitthvað myndband með honum allstaðar nema á Íslandi nottla og hlýtur það barasta að vera þetta myndband. Mæli með því að fólk kíki á það. Strax á eftir kom svo lag með Skúter þar sem fullt af stelpum voru dansandi berbrjósta á einhverju skipi eða eitthvað álíka. Allt má nú sýna hérna og er það hið besta mál. Lifi ritfrelsið á Íslandi!

The dumber people think you are, the more surprised they will be when you kill them.
..:: max ::..
blog comments powered by Disqus