mánudagur, apríl 21, 2003

Wicked


Það var gaman hjá mér í gær. Fór í körfu með strákunum og tókum rúnt, alltaf gaman að því. Svo var það grillaður humar í matarboðinu, og ef þú vissir það ekki þá er grillaður humar alveg æði góður! Þannig að það var líka snilld. Það var líka ógeðslega gaman á ballinu í gær. Algjörlega stappað í Stapanum og brjálað stuð. Byrjuðum hérna heima og töluðum saman og sturtuðum í okkur og það var mjög gaman. Svo voru auðvitað allir sem ég þekki á ballinu (eða svo gott sem) þannig að maður mátti eiginlega ekkert vera að því að dansa, það var svo mikið af fólki til að hitta og spjalla við. Ballið hefði mátt vera helmingi lengra. Sálin var algjör snilld og þetta var allt brilliant bara.

Núna er ég á leið uppí sumarbústað að fá meiri góðan mat, og í þetta skiptið með minni familíu. Vonandi verður það jafn gaman og allt sem ég gerði í gær. :)
..:: m ::..
blog comments powered by Disqus