föstudagur, apríl 04, 2003

Skjótt skipast veður í lofti og prump í rassi


Ég er algjörlega uppgefinn eftir þessa viku og þó hef ég ekki gert handtak. Ég ætla ekki að segja ykkur alla sólarsöguna en þeir vita sem vita. It's better to have loved and lost, than never to have loved at all. Var þetta ekki einhvernvegin svona?

Ég reyndi eftir bezta mætti að losna við auglýsinguna þarna efst en það tókst ekki. Losnaði þó við helvítis canEdit dæmið þarna efst þannig að ég er bara sáttur og nenni ekki að breyta meiru í þetta sinn.

Ég get ekki ákveðið mig hvað ég vill læra eða hvort ég vill læra eitthvað nú í haust. Þetta er bara eitthvað sem ég er búinn að hugsa fram og til baka og kemst að engri niðurstöðu. Þannig að ég hef ákveðið að þú skulir ákveða þetta. Ég hef búið til könnun sem þú átt að taka þátt í þar sem framtíð mín mun ráðast. Ef þú hefur betri tillögu en þær sem birtast í könnuninni þá endilega láttu mig vita með því að skrifa það í ShoutOut-ið mitt.

Orð vikunnar: Kannski. Ég er loksins búinn að læra að skrifa það með tveimur ennum.

Önnur pæling. Ég veit ekki hvort ég á að halda áfram að æfa sund. Þú færð bara að ákveða það líka. Svo er líka pollur vikunnar hér til hægri! Allt að gerast.
..:: magchen ::..
blog comments powered by Disqus