föstudagur, apríl 11, 2003

Harder! Faster! Scooter!!!


Að fara á Scooter eða fara ekki á Scooter? Núna er hálftími þar til að það verður opnað í höllinni og það er ekki enn víst hvort ég fari á Scooter. Það er uppselt en DJ HotPot ætlar að reyna að redda mér miða við innganginn. Aldrei að vita hvernig það fer. Þá verður bara brunað í bæinn og hoppað út í nóttina!! Annars er svaðalega gott veður fyrir djamm. Fínt að kíkja á eftirpartý á Nasa og svona... Djöfull er maður orðinn mikill hnakki.

Alltaf gaman að vera kallaður snillingur af fólki sem maður þekkir ekki. Þessari stelpu finnst ég vera snillingur af einhverjum ástæðum. Gaman að því. Ef þú lest þetta ungfrú Álfhildur Kúkablóm þá máttu alveg segja mér hver þú ert! :)
..:: magchen ::..
blog comments powered by Disqus