mánudagur, apríl 14, 2003

Mér fannst þetta bara töff mynd...Vúff...


Já vúff segi ég og meina það innilega. Ég er búinn að eyða deginum (amk þeim hluta af deginum þegar ég var ekki sofandi eða vinnandi uppá velli) í að breyta síðunni minni svo um munar. Útlitið er nokkuð breytt og finnst mér sú breyting vera til batnaðar. Hitt var svolítið litlaust og sterílt. Þetta er skárra. Og bara mjög flott finnst mér amk. Ef þú vilt segja þitt álit þá er ný könnun hér til hægri!

Núna er síðan líka þannig að þú getur eytt deginum hérna án þess að leiðast! Ég er búinn að bæta við nýjum linkum (þeir eru hér til vinstri, undirstrikaðir) og hér til hægri eru þrjú box með linkum sem breytast á fimm mínútna fresti. Eitt með baggalút, vísindavefnum, mbl.is og álíka afþreyingu. Hin tvö eru með nýlega uppfærðum bloggum, annað með íslenskum og hitt með útlenskum. Vonandi þarftu lesandi góður aldrei að fara aftur af síðunni minni því hér er svo mikið að skoða! :)

Ef þér finnst eitthvað að þessari uppsetningu eða hún er í einhverju fokki í tölvunni þinni láttu mig þá endilega vita. Það væri mjög vel þegið. Og allir þeir sem vilja hrósa mér og segja mér hvað ég er orðinn góður í html og css (að ég tali nú ekki um hvað ég er myndarlegur með rauða hárið og vel upp alinn) þá er comment kerfið upplagt til þess brúks.

En nóg um síðuna. Ég fór á djammið í gær og var lengi að. Var kominn í rúmið um hálf átta í morgun, en ég var dræver þannig að þetta var ekki þunnudagur. Bara ágætis sunnudagur. Djöfull getur verið gaman að skemmta sér edrú. Það sást bezt á því að við dræverarnir tveir vorum í mesta fjörinu þegar farið var að renna af hinum og þeir orðnir slepjulegir og vægast sagt viðbjóðslegir, nefni engin nöfn. Magnað líka hvað það var ótrúlega fallegt kvenfólk á Nellýs. Mér hefur alltaf fundist þetta pleis vera hálfgert hundahótel. En allavega. Ég er hættur í bili. Góðar stundir.
..:: magchen in action ::..
blog comments powered by Disqus