miðvikudagur, apríl 16, 2003

Sjallinn


Ég er að horfa yfir Eyjafjörðinn. Það er flott útsýni frá húsinu hans pabba. Sérstaklega þegar það er svona gott veður. Ég held ég skelli mér í sund á eftir. En það er aldeilis að íbúar Akureyris eru djammsjúkir. Kannski er þetta bara orðið svo ömurlegt heima í Kebblaík að maður heldur að það sé aldrei neitt í gangi annarstaðar heldur. Ok, ég veit að það eru tvö böll í Stapa um páskana, en það eru fjögur böll í Sjallanum! Skítahelvítismórall í kvöld, Sálin á föstudaginn, Papar á laugardaginn og MIB á páskadag! Ég er að spá í að reyna að komast á föstudaginn á Sálina, og aftur á Sálina í Stapa á páskadag! Það væri örugglega snilld. Kemur allt í ljós.
..:: max ::..
blog comments powered by Disqus