mánudagur, janúar 27, 2003

Það er alltaf gott að hafa fyrirsögn

Það var ekki jafn gaman í gær og hefði getað verið. Ekki mikið meir um það að segja, amk ekki hér. Ég sá Ghost Ship áðan og er hún afar slöpp. The Ring er hinsvegar mesta snilld og mæli ég með henni. Og þú verður að sjá hana í bíó, hún er pottþétt ekki jafn góð á spólu. Þetta er svakalega spúkí mynd. Annars hef ég ekki mikið að skrifa. Ekki gaman að skrifa þegar maður er í vondu skapi. Ég var mishress í dag. Ég ætla því ekki að eyða tíma þínum frekar. Ef þú ert að leita að einhverju til að eyða verðmætum tíma þínum svona rétt á meðan þú ert vakandi mæli ég með því að þú finnir þér stól og hvítan vegg.
..:: chen ::..
blog comments powered by Disqus