sunnudagur, janúar 05, 2003

Ég fór í ammæli í gær og það var líka bara svona glimrandi gaman! Fullt af fólki og veigum og það var djammað fram á nótt! Ég kíkti svo niðrí bæ en þar var ekkert í gangi þannig að ég fór bara heim eins og venjulega. Ég er búinn að komast að því að ég er alls ekki þessi gaur sem getur verð að djamma langt undir morgun. Það eru algjörlega undantekningartilvik hjá mér.
Annars er farið að hrúgast inn fólk í iCeBloG, eða svona næstum. Nokkrir komnir og vonandi nokkrir á leiðinni. Ég prófaði að senda Tilverunni þetta dót og nú er bara að sjá hvort þeir nenni að setja þetta inn. Ef það fer þar inn fær maður allavega nokkur þúsund hitt á iCeBloG síðuna og vonandi að einhverjir af því fólki nenni að taka þátt í þessu. Kemur bara allt í ljós.
..:: rauður ::..
blog comments powered by Disqus