laugardagur, janúar 25, 2003

Ég er búinn að taka burtu fullt af linkum hjá fólki sem er ekkert að blogga. Síðan var orðin soldið stór.


Ég var að horfa á Ísland rústa Katar en nennti því ekki. Við hverju búast menn? Maður hefur aldrei heyrt um þetta land! Af hverju ættu þeir að kunna handbolta!? Allavega, ég nennti ekki að horfa á þetta, fór frekar á netið. Missi hinsvegar ekki af Þýskalandi á morgun sko! Það verður fjör!

Var að spá, ætti ég að vera með myndavélina mína 24-7 og taka myndir af öllu sem ég sé og birta hér á síðunni? Það er nottla miklu skemmtilegra að skoða síðu með fullt af myndum. Hurru, ég geri könnun. Allir að kjósa! Á Maggi að birta fullt af fullt af myndum á síðunni sem hann tekur við öll tækifæri!? And the vote is on.
..:: myndchen ::..
blog comments powered by Disqus