sunnudagur, janúar 19, 2003

Guð er til

Ég var að keppa í dag og gær en það gekk illa. Ég veit alveg af hverju en ætla ekki að fara útí leiðinda smáatriði. Lélegt form og þreyta aðallega.

Skrítið að skrifa þetta fremst í bloggfærslu sem ber heitið "Guð er til" hugsar þú kanski. Sundið var ekki ástæðan fyrir því að ég skrifaði þetta, heldur var ástæðan allt önnur. Hún er sú að guð hlýtur að vera til fyrst það fyrirfinnst jafn falleg stelpa/kona og Jennifer Love Hewitt á þessari plánetu. Hún er endalaust falleg og ég fæ ekki nóg af að horfa á hana. Ég held svei mér bara að hún sé komin í toppsætið og velti því drottningu til margra ára af stalli. Það var hin ægifagra og íturvaxna Angelina Jolie. Hún hefur nú ekki glatað neinu en ungfrú Jennifer verður barasta að taka toppsætið af henni á listanum yfir fallegasta kvenfólk í heimi að mínu mati. Ég held samt að hún sé bara einu ári eldri en ég og er það ekkert nema gott. Ætli maður eigi sjens í hana? Aldrei að segja aldrei.
..:: magchen ::..
blog comments powered by Disqus