föstudagur, janúar 10, 2003

Jæja, var ekki kominn tími á smá tilbreytingu? Ég (eins og oft áður) eyddi allri nóttinni í þetta enda var ekkert smá vesen að fá þetta svona flott og fá allt til að virka. Eða mér finnst þetta að minnsta kosti flott. Ég bjó til skoðanakönnun til að tjékka hvort þetta væri að slá í gegn hjá fleirum en mér. Þetta er nefnilega ekkert sem ég fékk hjá blogger.com eða fékk tilbúið einhverstaðar annarsstaðar, heldur stal ég þessu héðan og þaðan, mixaði og breytti þar til ég var ánægður. Alltaf er maður að læra eitthvað nýtt! Allavega, ég held að það sé kominn tími á smá svefn hjá mér, en þegar ég vakna er eins gott að það verði komið fullt af commentum um nýja útlitið!
..:: newmag ::..
blog comments powered by Disqus